Stríðsyfirlýsing fjögurra ráðherra

Ég var að horfa á nokkurra daga gamlar fréttir á Stöð 2 rétt í þessu, aldrei þessu vant. Þá heyrði ég Jóhönnu og Steingrím tilkynna um aðferð þeirra til skuldaeftirgjafar heimila í landinu. Ég lít á þetta sem stríðsyfirlýsingu við heiðarlegt fólk.
 
Hvernig ætla þau sér að velja þá einstaklinga sem þau vilja aðstoða? Hvernig má það vera að fólk sem farið hefur varlega, greitt háa skatta til þjóðfélagsins áratugum saman, svo jaðrar við þrælahald, og tapað gríðarlega á afglöpum síðustu ríkisstjórna er enn eina ferðina látið bera þungann? Aðrir sem jafnvel hafa farið glannalega njóti aðstoðar, ég nenni ekki að týna til dæmi til rökstuðnings, þau eru næg.
 
Ég tók lán, reyndar lága upphæð tengda erlendum gjaldmiðlum, ég get alveg sætt mig við 30-40% gengisfall, en gengisfall uppá ríflega 100% er óásættanlegt og mismuninn eiga stjórnvöld að bera ábyrgð á, enda er hrunið á ábyrgð opinberra aðila fyrst og fremst vegna lélegra laga og lítt virkra eftirlitsstofnana.
 
Ég tek þessari yfirlýsingu ykkar. Það er óásættanlegt fyrir mig að samþykkja ykkar aðferð. Ráðherrar viðskipta og félagsmála hafa fyrr í sumar báðir komið með þessa stríðsyfirlýsingu og ég hreinlega skil ekki alla þessa ráðherra, þá sem þykjast vera málsvarar fólksins í landinu. Í mínum huga eru þeir óhæfir til að stýra landinu, verði þeirra tillaga ofaná, ég get ekki gert að því, kaus ég þó annan stjórnarflokkinn til forystu s.l. vor. Ég mun gera allt sem ég get til þess að þessar aðferðir þeirra verði fordæmdar hvar sem ég get.
 
Sagt er að reiður maður eigi ekki að skrifa bréf, allavega ekki leyfa neinum öðrum að lesa það. Ég er ekki reiður, mér er bara stórlega misboðið sem heiðarlegum Íslendingi og krefst þess að almennar aðgerðir verði framkvæmdar í stað þessarar svívirðingar, að öðrum kosti eiga ráðherrar sem þessu hafa lýst yfir að segja af sér strax.
 
Ég veit ekki betur en að hlutverk stjórnvalda sé að halda efnhagskerfi stöðugu, það hefur heldur betur mistekist eins og öllum er kunnugt. Gerið eitthvað í málunum. Til þess voruð þið valin. Nóg er af lausnum, en þið vogið ykkur að bjóða uppá þessa ósvinnu.

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband